Hvar er ég eiginlega??
22.08.2006 11:48:14 / signý

helú

heyriði.. ég er búin að skipta um stað í lífinu.. nú á ég  heima á www.litlid.bloggar.is veriði velkomin elskurnar:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 23:40:05 / signý

nei hæ.. hvað heitir þú;)

halló allir:d

sorry að ég hætti bara að blogga.. ég bara var ekki með netið í allt sumar:( nú er ég flutt suður og var að koma hérna í Torfufellið og ákvað að skrifa nokkrar línur:) bara svona til að láta vita af mér.. það er nú ósköp fátt að frétta, er bara búin að vera að vinna á Ólafshúsi í allt sumar og það var vægast sagt brjálað að gera þar.. svo var náttúrulega bara djamm hverja helvítis helgi, sem er gott já mjög gott..

en ég held ég verði að fara að gera eitthvað.. shiturinn sko.. allt í drasli;)

sjáumst..


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 00:16:49 / signý

madfhjla

b-ööööö újá það er ég, mætt á svæðið..

Aðeins vegna þess að ég hef minna að gera en geit útá túni..

Mér leiddist í dag, gríðarlega mikið!! Ragnhildur þurfti að taka upp á því að fara að vinna og Arna þurfti að fara suður.. þetta lið sko.. fór samt til tannlæknis sem var gríðarlegt stuð og auðvitað var ég með allt hreint og fínt þar.. engin skemmd.. reyndi að segja honum að ég væri með skemmd en hann harðneitaði því.. og ég komst að því að ég er bara aumingi.. já það er ekki gaman af þessu..

Djamm er gott, mjög gott..

Á morgun er ég að fara til reykjavíkur.. í húsbílnum.. já ekki hlæja.. bróðir minn kær er að fara að útskrifast úr vélskólanum (man ekki hvað nýja nafnið er) og ég er 100 á því að hann sé að fara að dúxa.. :)

Ég er búin að sækja um í Borgarholtsskóla.. ég var ekki búin að hugsa út í það að þurfa að hafa áhyggjur af því að komast ekki inní skólann.. jesus.. hvað ef þau vilja svo bara ekkert með mig hafa..? þá lít ég út eins og einn kall með ís.. omg

,,hvað segiði, hvaða strákur er svo inn núna??" hahahahahahaha snilldar setning

Ömmur eru yndi.. ég bara elska ömmur.. hver annar en amma segir svona: það er hm í handbolta í sjónvarpinu þannig að leiðarljós seinkar amma sagði: djöfulsins hálfvitar að stela þættinum mínum svona, vildi óska að það kæmi jarðskálfti og þeir allir dræpust.. hahaha amma er best!! Amma á líka gemsa og hún dýrkar hann, hún er nefnilega algjör prakkara og fiktari.. greyið árni viggó er fyrstur í símaskránni og verður oft fyrir því að fá hringingar frá ömmu.. þeas sem áttu alls ekki að verða hringingar.. amma kenndi mér líka að ropa.. meistari, ekkert annað!!

En já ég vildi nú bara svona láta vita af mér og úr því að mér leiðist alveg óskaplega og veit að ef ég fer að sofa þá verð ég bara andvaka þá ákvað ég að rita nokkrar línur.. hvað geriri maður eiginlega á daginn?? kann ekki að vera að gera ekki neitt þegar enginn annar er að gera ekki neitt.. vá..
ég elska vini mína svooo mikið að það er engu lagi líkt.. ég væri bara farin til fjandans án þeirra.. knúúús:*

Allavega nóg í bili.. blessó

Signý Ósk -  karl í krapinu

» 16 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 18:47:58 / signý

æjh

ég nenni ekki.. ég er löt.. ég nenni ekki að blogga.. það gerist margt.. það vita allir meira um það en ég samt.... þannig að ég ætla ekki að nenna að blogga núna..
Geri það kannski á morgun.. en í bili.. BLESS

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 00:18:54 / signý

Sæl

já komiði sæl

ég er stödd í Hveragerði núna.. var að koma af snyrtivörukynningu í Selfoss og það var bara mjög gaman, fékk alveg rosa fínan augnskugga gefins.. síðan ætluðum ég, systir mín og vinkonur hennar að fara og setjast á kaffi hús eða eitthvað en nei það var ekkert opið, ekki hægt að setjast neins staðar og spjalla með bjór.. í alvöru er fólk ekki búið að fatta að Sauðárkrókur er algjör snilld!! æj fannst þetta dáldið hallærislegt..

Já annars kom ég í bæinn á föstudaginn ásamt Guðrúnu, Stefáni og Stefáni Jón.. ég og Guðrún renndum í Hveragerði og bjuggumst við rólegheitum og litlum krökkum.. en nei auðvitað elti djammið okkur uppi og við enduðum á balli á Hótel Örk sem var með í svörtum fötum og það var bara hörkufjör, Kristín skellti sér auðvitað með og jakkanum hennar var stolið;( ömurlegt! en ég endaði ballið með að fara fyrir framan sviðið og öskra BLÖNDUÓS.. sem ég skil ekki alveg sjálf.. en auðvitað skildi enginn hvað ég var að tala um..;) þetta var snilld.. fyrir utan það að auðvitað mættu á svæðið, Bragi, Stefán, Eymar og Kiddi ásamt Jóni Hauk bróður stefáns.. gaman að djamma með þeim.. ég svaf ekki mikið þessa nótt..

á laugardaginn REYNDUM við að drífa okkur á forkeppni söngkeppnarinnar, það tóks hægt.. við horfðum á það og forum svo í sund í kópavogi og það var vægast sagt fyndið!! Guðrún var ekki með sundföt og fékk lánaðan þennan líka fína sundbol.. og ég var í gömlu bikíní af Sólveigu og ég var með mesta hliðarspik í heimi, maður verður að fara að gera eitthvað í þessu!! hehe þetta var fyndið.. og já svo var Bragi í fyndnustu stuttbuxum sem ég hef séð.. nei bara grín;)

svo drifum við okkur heim til Sólveigar, fengum okkur kakósúpu þar sem var best! svo tókum við okkur til og brunuðum upp í Garðabæ og þar var alveg geggjað stuð:) gaman af því, atriðið okkar var geggjað, það var GEGGJAÐ!! úrslitin voru alveg lala.. hefði samt vilja hafa okkur í fyrsta, mh í öðru og svo bara einhvern í þriðja:) en þetta var flott, auðvitað vorum við vinsælust:D en já svo vil ég koma því að að lagið með hljómsveitinni hans helga, stjörnur sem verið er að spila á fm og einhverjum stöðum er bara geggjað, jesus ég fæ mestu gæsahúði í heimi, án efa bestaíslenska rapplag sem ég hef heyrt!! til hamingju með það!

um kvöldið fórum við svo bara á rúntinn þar sem skapti massaði allt:) svo fórum við i eitthvað partý og þar var alveg gríðarlegt fjör.. en auðvitað gat ég ekki skemmt mér af því að ég var bara hmm.. ég.. þannig að við Guðrún fórum heim að sofa..:) Sólveig skemmti sér samt sem áður vel!

ég gerði svo ekkert á sunnudaginn sjálfan nema að spjalla við sólveigu sem var æði og svo fórum við í bíó og date movie sem var viðurstyggileg og pínu fyndin.. svo fórum við og náðum í dótið mitt upp í skipholt en þar var ég hjá Nínu.. ég gisti svo hjá sólveigu og fór svo og hitti pabba á mánudaginn og fór heim með kristínu.. er þar núna.. er á leiðinni heim á morgun..

Sólveig ætlar að koma með mér heim og fara með mér á sitt fyrsta Miðgarðs ball.. vá hvað verður geggjað gaman um helgina..!!

heil og sæl..


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 14:04:58 / signý

veikindi og volæði

Já ég er sko veik, ég hata það, vá hvað ég hata það!! ég er í svo vondu skapi og ég hata það svo mikið að vera veik að ég ætla ekki aðg era einn broskall!! ég er bara bitur lítil kona núna!!

Það var ball á föstudaginn og það var bara fínt sko.. Ragnhildur er plebbi.. hún hélt hún væri búin að týna hattinum sínum og var í klukkutíma að leita út um allt en nei viti menn þegar ég kom heim til hennar daginn eftir þá slysaðist stúlkan til að kíkja í töskuna sína og hvað haldiði.. herra Hattur var mættur á svæðið.. kjallinn..hehe það var best

Það er ekki saga um threesome í gangi

Signý var ekki þunn á laugardaginn

mig langar svo í hund, vá.. ég er alltof einmana.. pæla að eiga hund sem maður getur alltaf talað við og dröslast með út um allt.. jeij

ég elska vinnuna mína næstum alltaf.. ég fékk fullt af vöktum í þessum mánuði, djöfull er ég glöð með það, það er ekkert sem ég hata meira en að hafa ekkert að gera og ég á eftir að hafa nóg að gera um páskana.. sofa út, sofa út sofa út.. vinna vinna vinna og fara á öll tiltæk böll já ekki tiltæka eða neitt svoleiðis.. vá égheld það líði yfir mig

heh það er fyndin mynd í sjónvarpinu sem ég hef enga ánægju af, skrítið

fyndið.. ég er á kafi í bullinu.. það er að segja lærdómi - helvíti
baðherbergið er á góðri leið, vaknaði samt við vinnu í því bæði á föstudag og laugardag.. já þar hafiði það!!! ég ein

vá ég fór heim úr vinnunni klukkan hálf tólf á laugardaginn og fór í tölvuna og að sofa klukkan tólf.. LAME
Svo í gær þá tók ég myndina perfect catch sem snorri var búinn að segja mér að taka og hún var lame, lét mig verða litla og eymdarlega í hinum stóra heimi.. okey minni!!

Jæja ætla að deyja úr veikindum
bless

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:12:08 / signý

þessi helgi...

var geðveik.. já hún var góð þessi blessaða helgi:)

En já lesendur góðir ég hef tekið eftir því að ég skrifa aldrei neitt skemmtilegt hérna.. og komst að því í leiðinni að ég er ömurlegur penni.. en úr því að það er gott að létta af sér hérna öðru hvoru þá ætla ég samt að halda áfram að skrifa eitthvað leiðinlegt og gott hérna..:) ykkur öllum til ómældrar ánægju!! ójá

Já kellingin skellti sér út um helgina, ein og yfirgefin á föstudaginn, allar mínar heittelskuðu einhversstaðar sem var ekki hér:) en ég fékk brynhildi til að keyra mér og ingibjörg og stefán voru með.. það var nokkuð nettt á rúntinum en svo skellti ég mér á Geira meistara, djöfull er hann ógeðslega svalur gaurinn!! og nei stefán ég man að ég skulda þér 1000 kr:D

heyrðu það var djammað á barnum og laugardagurinn bar merki þess:) sorry hvað ég vældi mikið i vinnunni..en jájá

á laugardaginn svaf ég til hálf fimm og var samt dáldið slöpp sko..:$ í vinnunni var nú bara djammað álíka mikið og á barnum.. heyrðu svo voru stelpurnar komnar heim og auðvitað skelltum við okkur á rúntinn með katrínu, ég og arna mín sko.. svo fórum við á kaffi krók, stuð það;) haha.. fórum svo á barinn þar sem allt var í uppnámi.. jesus.. svo var haldið áfram að djamma þar og alveg í botn..

sjónvarpið kallar.. kannski kemur framhald..

bless


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 11:48:13 / signý

nú jæja

já ég hef nú eiginlega ekkert að segja sko.. ég er að fara í skóla fyrir sunnan í haust, það verður geggjað gaman! ég ætla samt að útskrifast hérna með öllum vinum mínum og vonndi fara í útskriftarferð.. það verður geggjað gaman að fara suður til systkyna minna og Sólveigar Rögnu.. ömurlegt að vera án þessa fólks.. svo ef mér líkar ekki þá get ég alltaf komið heim aftur, held samt að það sé ekki möguleiki að mig langi að fara heim sko.. held þetta verði gaman!

Það er búið að vera geggjað mikil biturð og leiðindi í loftinu undanfarið.. en það er samt bara eðlilegt sko.. ef að andrúmsloftið er dáldið þungt þá veit maður að það á eftir að létt til í bráðina og þá verður allt gott aftur, vona það allavega af öllu mína pínulitla hjarta!

Það er allt í einu kominn miðvikdagur... það er skrítið hvað tíminn líður endalaust hratt, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég fór út að hjóla á gamla hjólinu mínu sem fékk nafnið Druslan:) væri alveg til í líka að fara út að drullumalla..

ég held ég sé of mikil félagsvera, eða of úthverf á fræðimáli.. ég hata að vera ein, ég vil alltaf hafa einhvern hjá mér, allavega í kringum mig..

Kristín systir kom á mánudaginn og hún var að fara núna rétt áðan:( Vá hvað er yndilsegt að hafa þessa gríslinga hjá sér.. Sunneva er að verða 6 ára, hún er að fara í skóla:) þetta vex hratt..

Jæja.. lfið heil..

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 17:18:36 / signý

Þegar ósanngirnin knýr dyra

já.. við könnumst öll við það ekki satt?
En annars er ósköp langt orðið síðan að ég ritaði eitthvað af viti hér.
Ég fór á árshátíð ásamt vinum mínum góðum og þar borðuðum við góðan mat og skemmtum okkur undir skemmtiatriðunum.. Það voru allir rosa fínir nema nokkrir aulabárðar en það þurfa alltaf einhverjir að vera spes þannig að það er allt í lagi, við fórum svo heim til Ragnhildar og fengum okkur mjólk að drekka og skelltum okkur svo á ball með á móti sól sem var ágætt en í hléinu skelltum ég og brynhildur okkur á rúntinn og ákváðum svo að fara á barinn sem reyndist vera geggjað og ég skemmti mér æðislega vel:) kominn tími til skal ég segja ykkur!

Svo er skólinn bara búinn að ganga sinn vanagang og maður er farinn að hlakka ansi mikið til þegar mai gengur í garð!!

Það er verið að láta hita í gólfið inná baði, gangi og hjónaherbergi þannig að það er allt í kássu og samt aðallega ryki.. herbergið mitt er inná gangi og á milli baðsins og hjónaherbergisins þannig að þetta er mjög óskemmtilegt.. en verður samt sweet þegar þetta er búið:)

Já og svo eru páskarnir að koma og það verður geggjað gaman maður..:) á móti sól í miðgarði og í svörtum fötum á Blönduósi.. DJAMM DJAMM DJAMM, já það verður gaman..

í kvöld er ég svo að fara í afmæli og þar verður vonandi líka djammað:)

En nóg í bili.. bæjó

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:53:31 / signý

pollur

halló, ég er ofboðslega leið í augnablikinu. Mér líður eins og ég sé föst stórum, köldum polli sem ég svamla bara í. Það var samt gaman í dag sko, ég fór í ljósmyndamaraþon með Jóhönnu og Ragnhildi.. geggjað gaman fyrir utan að Jóhanna mín klemmdi puttalinginn sinn æjæj og óó..:( á morgun er svo eitthvað etwinning verkefni.. vonandi verður það bara gaman.. svo þarf ég að fara að hringja inn auglýsingar.. ekkert það skemmtilegasta í heimi en gaman að geta hjálpað til. Hlakka samt mest til að fara í jóga.. held það verði töff.. æj ég er í engu skapi til að blogga.. heimurinn er snúinn drullupollur.. æj já og þetta líka

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin :Þ
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
( ) farið í "tískuleik"
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
( ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út.
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin af post-it miðum
( ) leikið þér berfættur í drullunni
( ) verið týndur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
( ) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin í partý
( ) verið beðin um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig



Bless


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 18:51:41 / signý

Kjóllinn

já já já... ég er búin að finna kjólinn, kjólinn sem ég ætla að vera í á árshátíðinni! Nú þarf ég ekkert að hafa áhyggjur lengur, þarf ekki að eyða mörg þúsund krónum í nýjan kjól, nei ég er búin að finna hann! og hann er meira að segja fullkominn, og hvar fann ég hann? hjá systur mömmu minnar:D ég elska hann.. vildi bara deila gleði minni með ykkur;)

Kv Signý

» 8 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 14:51:45 / signý

Shit..

jæja elskulegu aðdáendur:)

Þá hef ég loksins mannað mig upp í það að byrja aftur á þessari vitleysu:)
Margt hefur gengið á síðan að ég skrifaði síðast en sumt er nú bara ekki frásögu færandi.. þannig að ég stikla bara á stóru:lol:  Nú prófin eru loksins búin og ég náði þeim öllum og þess vegna alveg ágætt að vera lifandi, það sem bætir lífið enn meira upp er að ég er að fara suður á morgun til elskulegrar systur minnar að reyna að skemmta mér aðeins, ég hef komist að því að sauðárkrókur er ekki besti staðurinn til að gera það.. en allavega ég vona að ég komist heil til hveragerðis, en þar býr hún systir mín ásamt fjölskyldunni.. svo þegar ég er komin þangað þá ætla ég að leita mér að einhverju til að vera í á árshátíðinni okkar í FNV, allir þangað:) það er svo gaman að vera fínn og borða fínt og sjá aðra fínt o.s.frv. Nú jæja já.. það er öskudagur í dag og þess vegna erum við í fríi, jeijjjjj en ég hef ekkert að gera þannig að ég sit bara hér eins og kless og hlakka til þangað til að ragnhildur er búin í klippingu..

Nú jæja signý er búin að minnka um einn millímetra og fá tvo endajaxla, raka af sér hárið og fitna dáldið...

Hleðslutækið mitt er komið þannig að tölvan mín er komin til baka frá heitasta helvíti..

ætli það sé ekki eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu??

bless

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 17:09:51 / signý

Nei hæ...

OKEY..

ég verð í fyrsta lagi að viðurkenna að Guðrún og Ragnhildur fengu mig til að blogga aftur og Arney smá líka:) hehe.. þannig er nú bara mál með vexti  að mig langaði svo að setja þetta dót inná þannig að hérna kemur þetta.. og ég lofa að blogga smá meira:)

commentaðu nafninu þínu og ég mun;
1. ég segi þér eitthvað handhófskennt um þig
2. ég segi þér hvaða lag eða mynd minnir mig á þig
3. ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. ég segi þér fyrstu ljósu minninguna af þér
5. ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig
7. ef þú lest þetta verðurðu að setja þetta á bloggið þitt

og KOMA SVO

» 31 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 17:36:47 / signý

********??

Halloj

Hvað segiði þá? ég segi allt fínt, enda er líka fimmtudagur og þessi helgi veður held ég bara geggjað góð:) btw þá er þetta blogg bara fyrir Ragnhildi.. hún beitti mig valdi..:( nei það er kominn tími til að blogga smá.. en ég veit samt ekkert hvað ég á að segja þannig að ég ætla bara að bulla eitthvað misskemmtilegt..:)

í dag er fimmtudagur og það var bara fínt að vera til í dag.. sem er gott.. ég fékk mér meira að segja munchesa..

á morgun er föstudagur og þá verður Njálu próf.. það er samt fínt því að þá verður það búið (ef að hlusta á Pollýönnu með Bubba:)) já vá hvað ég er stopp eitthvað..

Hey ég mana alla að lesa www.baggalutur.is á hverjum degi.. snilldsnilldsnilld!!!
svo hvet ég alla til að hlusta á fm 93.7 - Rás Fás í kvöld á milli hátta og níu:)

JÆja já.. ég ætlaði að segja eitthvað geggjað sniðugt en ég bara man ekki baun í bala.. ég var samt að pæla í hvað maður getur stundum verið auðtrúa og mikil ljóska.. ég meina þetta hefur komið fyrir alla... að maður bara fattar ekki hvað maður er að segja og það kemur einhver bölvuðu vitleysa út úr manni.. hehe það er svoo fyndið:P samt skemmtilegra þegar þetta kemur fyrir einhverja aðra en mann sjálfan..

vá ég verð samt að koma með eitt leiðinlegt.. ég verð ein með mömmu og pabba á jólunum:( nei ég er ekki að grínast.. þúst.. vá mig langar ekki að jólin komi!! Bróðir minn verður á Akureyri með Nínu og Kristín og Marri verða í Hveragerði með angana sína og ég verð hér með mömmu og pabba.. ég spyr ykkur bara, kallast þetta þá jól ef enginn af fjölskyldunni er hjá manni????? nei ég held ekki... ég er bara í fýlu við jólin núna!!

en ég ætla að fara að hætta þessu helv kjaftæði..
:D

» 16 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 16:25:22 / signý

er tæknin að plata þig??

hæ allir..
vitiði það að tæknin er alltaf að plata mig.. suss.. en ég nenni ekki að tala um það meira því að nú er tölvan mín komin í lag þannig að allt er í lagi:D:D jeij signý er glöð
En það er nú ekki mikið búið að gerast undanfarið hjá mér.. klessti bílinn minn:( fékk skítsæmilegar einkunnir og skemmti mér með yndislegasta fólki í heimi:D
Ég þekki svo mikið af góðu og skemmtilegu fólki að þegar ég hugsa um allt hitt leiðinlega fólkið þá pirrast ég eiginlega ekki lengur af því að hinir eru svo góðir og yndislegir.. mér finnst samt dáldið funky hvað þessir leiðinlegu eru ekki að átta sig á því að þeir eru leiðinlegir.. en upp á síðkastið er ég búin að endurkynnast fólki, fólki sem ég hélt að væri leiðinlegt í gegn en er það svo alls ekki, ég elska þegar eitthvað svona kemur fyrir:) en svo eru aðrir sem eru bara leiðinlegir í gegn og munu ALDREI breytast í mínum augum.. en það eru nú auðvitað ekki þið lesendur góðir, eða hvað?;) en jæja núna um helgina komu Kristín og Marri í heimsókn með litlu englana sína, þau eru yndisleg:D sérstaklega þegar maður kemur heim og þau eru í leikfimi, haha sem sagt að herma eftir í fínu formi:D og svo var Kristófer með hálsbólgu og ég held að ég hafi aldrei heyrt neitt jafn sætt, vá það var svooo óendanlega sætt að heyra hann tala! en já þetta var alveg ágæt helgi, ég rúntaði með stelpurnar á föstudaginn til að leyfa þeim að drekka:) Gullna reglan gott fólk!!!

En að öðrum málum, Snorri er fluttur inn í Birkihlið 2, neðri hæð og það er bara kúl:)
það var óveður hér um helgina þannig að það var gaman hjá mér, festi mig 4 á Lancernum en losaði mig sjálf og fékk feitasta adrenalínkikk:) en ég ætla að taka það fram að Skapti er aldrei búinn að festa sig, ekki einu sinni, hann er bestur, þrátt fyrir að stuðarinn hafi dottið af einu sinni:$

það er ekkert að gerast í mínu lífi og ég held að þetta hafi verið heimsins leiðinlegasta blogg þannig að ég ætla í sturtu.. enjoy



» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6